Þriggja daga keppni á vegum Tinds – tímataka, criterium og götuhjólamót. Þetta er opinber keppnishandbók með öllum reglum, leiðarlýsingum og stigakerfi. Handbókin verður uppfærð reglulega fram að keppni.
Þessi keppnishandbók er fyrir mótaröðina „Tour de Tindur“ árið 2026. Mótin eru haldin dagana 4. til 6. júní 2026.
Í þessari keppnishandbók er að finna allar upplýsingar um keppnina, aðkomu að keppnisstað ásamt myndum af brautinni. Handbókin mun vera í stöðugri uppfærslu alveg fram að keppni.
Dagskrá:
4. júní – Tímataka, kl. 19:00 á Suðurstrandarvegi við Þorlákshöfn.
5. júní – Criterium, kl. 18:00 á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði.
6. júní – Götuhjólakeppni, kl. 17:00 á Þingvöllum.
Skráning fer fram á síðu HRÍ, hri.is.
Keppendur þurfa að vera með rétt merkt hjól og leigða tímatökuflögu á keppnisdegi. Lesið þetta vandlega – röng uppsetning getur leitt til tímaskekkju eða brottvísunar úr keppni.
Tímatökuflagan fer á gafallinn á hjólinu. Notaðir eru tveir strappar til að festa hana.
Setjið flöguna á fremri gaffal hjólsins – ekki á stýri eða ramma.
Festið með báðum ströppum þannig að flagan sé þétt og hreyfist ekki.
Ekki setja flöguna sömu megin og bremsudiskurinn er – hún má ekki snerta diskinn við snúning hjólsins.
.
Keppendur þurfa að mæta í tæka tíð fyrir keppni svo hægt sé sækja keppnisnúmer og koma þeim fyrir á hjólinu. Mætingartími er tilgreindur fyrir hverja keppni hér fyrir neðan.
Athugið að keppendur sem taka þátt í fleiri en einni dagleið þurfa að nýta sama númerið aftur og fá ekki nýtt númer. Keppendum er bent á að vernda númerin sín og tryggja endurnýtingu. Sérstaklega þarf að gæta þess að keyra ekki með númer áfest þegar hjólið er á bílþaki eða króki.
Eftirfarandi reglur gilda um allar þrjár keppnirnar í Tour de Tindur. Öryggi og sanngirni skulu ávallt vera í fyrirrúmi við framúrakstur. Sérstæðar reglur hverrar keppni er að finna í viðkomandi kafla.
Tímatakan fer fram á Suðurstarndarvegi og hefst við Víkursand 1 þar sem Lýsi er til húsa.
Ath. heimilt er að leggja bílum á bílastæðinu hjá Lýsi, Víkursandi 1.
Hjólaðir eru 22 km á Suðurstarandarvegi, rás- og endamark er við Víkursand 1 (Lýsi). Frá rásmarki eru hjólaðir 11 km að Bjarnastaðahólum/Selvogsvegi þar sem er snúið við og hjólað til baka að endamarki.
Styttri leið: Hjólaðir eru 6,725 km frá rásmarki að snúningspunkti og þaðan er aftur hjólað í endamark.
22 km TT
Styttri leið
Rásröð innan hvers flokks miðast við niðurstöður úr næstu sambærilegu TT-keppni. Ráslisti birtur kl. 10 að morgni keppnisdags.
Keppnin fer fram á Kvartmílabrautinni í Hafnarfirði.
Keppnin fer fram í ákveðinn mínútufjölda. Þegar tíminn er búinn er kláraður hringurinn sem er í gangi auk lokahrings. Þegar farið er út á lokahring er notuð bjalla til að gefa til kynna að um lokahring sé að ræða.
Criterium-brautin er lokuð götubraut Kvartmíluklúbbsins. Mælt er eindregið með því að skoða brautina fyrir ræsingu og kynna sér vel legu hennar, sjá leið á Strava og kort hér fyrir neðan.
Athugið ekki er leyfanlagt að fara inn á braut á meðan önnur keppni er í gangi.
Elite karla og U23 karla hjóla 6 hringi eða 101,4 km, rástími kl. 17:00.
B-flokkur karla og junior karla hjóla 5 hringi eða 84,5 km, rástími kl. 17:03.
Elite kvenna og U23 kvenna hjóla 5 hringi eða 84,5 km, rástími kl. 17:06.
B-flokkur kvenna og junior kvenna hjóla 4 hringi eða 67,6 km, rástími kl. 17:09.
U17 karla og kvenna hjóla 3 hringi eða 50,7 km, rástími kl. 17:12.
Ræst er í námunda við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum, á vegi 361, Vallarvegi. Hringurinn verður hjólaður réttsælis. Fljótlega eftir ræsingu er 90°hægri beygja inn á veg 36, Þingvallaveg. Brautavarsla verður á gatnamótunum en engu að síður skal varst umferð frá vinstri í beygjunni. Þingvallavegi er fylgt þar til komið er að syðri enda vegs 361 aftur, þar sem venjulega er lokað fyrir bílaumferð. Þar er tekin hægri beygja niður veg 361 og þeim vegi fylgt að start/enda marki.
Settur er fyrirvari um skekkju á hækkun og lengd, miðað er við gögn frá Strava.
Aðstaða er fyrir félags- og fyrirtækjatjöld á merktu svæði (A). Vinsamlegast fyllið svæði A fyrst áður en önnur svæði eru notuð.
Sama staðsetningarstigakerfi gildir í öllum þremur keppnum. Til að teljast í stigakeppninni þarf keppandi að vera á startlista í öllum þremur keppnum. Keppandi með flest stig samanlagt sigrar TdT.