Haustæfingar fyrir börn og unglinga 2020
TINDUR KIDS haust 2020
8 vikna haustæfingar 2020 í samvinnu við Hjólaskólann
Krakkar fæddir 2005-2012
Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum kl. 17-18.15
Staðsetning: Öskjuhlíð
Námskeið hefst mánudaginn 10.8
Tímabil: 8 vikur 10.8-2.10 2020
Verð: 19.900 kr.
Tindur býður í samvinnu við Hjólaskólann upp á fjallahjólaæfingar fyrir börn 8 -15 ára tvisvar í viku. Skipt verður upp í yngri og eldri/óreyndari og reyndari hóp.
Markmið æfinganna er að skapa hjólagleði og áhuga með því að kenna og þjálfa börn í fjalla/hjólafærni af öryggi, bæði á stígum og í náttúrunni. Námskeiðið er lifandi kennsla í hjólafærni á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni. Við lærum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða sem auka á sjálfstraust og skemmtun á hjólinu!
Öskjuhlíðin og nágrenni er frábært svæði til að læra og leika á hjólinu. Á þessum svæðum eru endalausir möguleikar og mörg ólík erfiðleikastig og fyrst og fremst svakalega gaman að leika sér :) Á æfingunum verða aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt barnið er komið í íþróttinni. Allir læra og fá að njóta sín!
Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum en er þetta þriðja árið þeirra með Tindur Kids. Eru þær báðar með þjálfarapróf frá ÍSÍ ásamt því sem Þóra Katrín er með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi PMBIA frá Kanada og Erla er með mikla reynslu frá landsliðinu og æfingum hjá Alþjóða hjólreiðasambandinu. Verða þær með fleiri vana þjálfara með sér til að sjá um æfingarnar.
Skráning hér: https://vefverslun.tindur.cc/products/haustaefingar-tinds-fyrir-8-15-ara
Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: hjolaskolinn@gmail.com