Voræfingar Tindur Kids 2021

TINDUR KIDS

Tindur heldur 5 vikna fjallahjólaæfingar í apríl og maí 2021 í samvinnu við Hjólaskólann.

Dagsetning: 5 vikur frá 27. apríl - 27. maí, 10 skipti.

Aldur: Krakkar fæddir ca. 2006-2011 (10-15 ára).

Tími: Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-18.30

Staðsetning: Öskjuhlíð

Tímabil: 5 vikur 27.4. - 27.5. 2021

Verð: 18.900 kr.

Tindur býður í samvinnu við Hjólaskólann upp á fjallahjólaæfingar fyrir börn ca. 10 -15 ára tvisvar í viku. Skipt verður upp í yngri og eldri/óreyndari og reyndari hóp. Allir fá að njóta sín á sínum forsendum.

Markmið æfinganna er að skapa hjólagleði og áhuga með því að kenna og þjálfa börn í fjalla/hjólafærni af öryggi í náttúrunni. Námskeiðið er lifandi kennsla í hjólafærni á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni. Við lærum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða sem auka á sjálfstraust og skemmtun á hjólinu!

Öskjuhlíðin og nágrenni er frábært svæði til að læra og leika á hjólinu. Á þessum svæðum eru endalausir möguleikar og mörg ólík erfiðleikastig og fyrst og fremst svakalega gaman að leika sér :) Á æfingunum verða aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt barnið er komið í íþróttinni. 

Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum en er þetta fjórða árið þeirra með Tindur Kids. Eru þær báðar með þjálfarapróf frá ÍSÍ ásamt því sem Þóra Katrín er með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi PMBIA frá Kanada og Erla er með mikla reynslu frá landsliðinu og æfingum hjá Alþjóða hjólreiðasambandinu. Verða þær með fleiri vana þjálfara með sér til að sjá um æfingarnar.

Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: hjolaskolinn@gmail.com
Skráning:
https://vefverslun.tindur.cc/products/voraefingar-tinds-fyrir-10-15-ara-2021

IMG-4050_21f4741b-aaef-45e5-a3ea-6d347dbfb3fa_1024x1024@2x.jpeg
Ragnar Freyr Magnússon