Sumarhjólanámskeið 2025
Tindur og Hjólaskólinn kynna: Sumarhjólanámskeið í náttúrunni fyrir börn 7-12 ára.
Markmið námskeiðanna er að skapa hjólagleði og gera hjólreiðar ævintýralegar og eftirsóknarverðar hjá börnum. Við hjólum í skóginum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða sem auka á færni, sjálfstraust og skemmtun á hjólinu. Við æfum hjóla- og umferðarreglurnar, förum í hjólatúra í borginni, og hjólum á alls kyns undirlagi, á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni og tökum alltaf nesti og pásur á spennandi stöðum.
Fæðingarár 2013-2018
Aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt sem barnið er komið á hjólinu. Allir læra og fá að njóta sín!
Námskeiðin eru fjórir eða fimm dagar kl. 9 - 11:45 á eftirfarandi dagsetningum í Öskjuhlíð og Norðlingaholti/Heiðmörk. Takmarkaður fjöldi kemst að þar sem hóparnir eru ekki stórir.
Júní námskeið í Öskjuhlíð og Norðlingaholti:
Námskeið 1 - 10.-13. júní (4 dagar) Öskjuhlíð
Námskeið 2 - 10.-13. júní (4 dagar) Norðlingaholt
Námskeið 3 - 16.- 20. júní (4 dagar) Öskjuhlíð
Námskeið 4 - 23.- 27. júní (5 dagar) Öskjuhlíð
Námskeið 5 - 23.- 27. júní (5 dagar) Norðlingaholt
Ágúst námskeið í Öskjuhlíð og Norðlingaholti:
Námskeið 6 - 5. - 8. ágúst (4 dagar) Öskjuhlíð
Námskeið 7 - 11.-15. ágúst (5 dagar) Öskjuhlíð
Námskeið 8 - 11.-15. ágúst (5 dagar) Norðlingaholt
Námskeið 9 - 18.-21. ágúst (4 dagar) Öskjuhlíð
Hjól: Fjallahjól með grófum dekkjum. Athuga vel að dekk, bremsur og gírar séu í góðu lagi. Gott er að hafa aukaslöngu ef það skildi springa. Börn skulu koma með nesti með sér (t.d. samloku og ávöxt) og drykk í bakpoka (með breiðum böndum - ekki sundpoka) sem þau geta hjólað með. Einnig þurfa börnin að vera klædd í samræmi við veður hverju sinni. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.
Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum og Tindi en er þetta áttunda árið þeirra með sumarhjólanámskeiðin. Eru þær báðar með þjálfarapróf frá ÍSÍ og UCI (alþjóðahjólreiðasambandinu) ásamt því að vera með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi. Munu þær fá fleiri vana hjólara með til aðstoðar.
Verð:
Kr. 21.900 fyrir 5 daga námskeið
Kr. 18.000 fyrir 4 daga námskeið
Fyrir systkinaafslátt hafið samband við hjolaskolinn@gmail.com áður en skráningu er lokið
*ATH. Tindur og Hjólaskólinn geta ekki fellt niður eða endurgreitt námskeiðsgjöld ef afbókað er með minna en viku fyrirvara.
*ATH. Ef afbókað er með a.m.k. viku fyrirvara fæst 50% endurgreiðsla.
Skráning í Vefverslun Tinds
Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: hjolaskolinn@gmail.com